Dældu þúsundum rúmmetra af sandi

Dýpkunarframkvæmdir í Landeyjahöfn. Úr safni.
Dýpkunarframkvæmdir í Landeyjahöfn. Úr safni.

„Við fórum fyrst í byrjun mars en urðum frá að hverfa. Þá vorum við búin að dæla 7.000 rúmmetrum. Núna erum við búin að dæla síðan á mánudagsmorgunn í síðustu viku á milli 90-95.000 rúmmetrum,“ segir Gunnlaugur Kristjánsson hjá Björgun ehf. sem annars sanddælingar í og við Landeyjahöfn.

Herjólfur siglir aftur í höfnina á morgun eftir fjögurra mánaða hlé líkt og mbl.is sagði frá fyrr í kvöld, en höfnin hefur verið of grunn til þess að óhætt væri að sigla skipinu þar að landi.

„Við erum komin í um 100.000 rúmmetra síðan við byrjuðum að dæla í byrjun mars - þar af núna í vikunni eitthvað yfir 90.000 rúmmetra. Við vorum með þrjú skip meðan við vorum að dæla í rifinu en síðan Perlu og Dísu eftir það,“ segir Gunnlaugur. Ennþá sé verið að dæla.

Klárað þegar færi gefst

-Hvert er efninu dælt?

„Þessu er siglt út fyrir - út fyrir rifið þar sem að eru austur/vestur straumar.“

-Það er þá engu dælt upp neins staðar?

„Nei allt losað í sjó.“

-Hvað eruð þið þá búin að taka mikið úr höfninni sjálfri heldur þú?

„Úr höfninni sjálfri eitthvað í kringum 65.000 rúmmetra og ekki komnir í fullt dýpi ennþá en þó þannig að það er hægt að sigla.“

-Hvað eigið þið að fara djúpt?

„Það er misjafnt eftir svæðum í höfninni. Það er frá fimm og hálfum og upp í sjö metra.“

-Þið klárið það á næstu vikum?

„Eftir því sem færi gefst, en ég held að Herjólfur ætli að sigla á morgun. Það er orðið fært.“

Aldrei jafn mikil afköst á einni viku

Gunnlaugur segir að síðan farið var að dæla í Landeyjahöfn hafi afköstin aldrei verið jafnmikil og í síðustu viku.

„Til að setja þetta í samhengi þá var reiknað með, þegar var verið að opna höfnina fyrst og fjaran var óunnin algjörlega, að það þyrfti að fjarlægja þarna 180.000 rúmmetra. Í það verk höfðum við þrjá mánuði. Þetta er meira en helmingurinn af því og það erum við búin að klára á sjö dögum,“ segir Gunnlaugur.

Herjólfur siglir í Landeyjahöfn á morgun.
Herjólfur siglir í Landeyjahöfn á morgun. mbl.is/GSH
Landeyjahöfn og Vestmannaeyjar.
Landeyjahöfn og Vestmannaeyjar. mbl.is/Rax
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert