Vilja ræða hugsanlega sölu banka í þingnefnd

Guðlaugur Þór Þórðarson og Pétur H. Blöndal hafa óskað eftir …
Guðlaugur Þór Þórðarson og Pétur H. Blöndal hafa óskað eftir fundi í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis til að ræða hugsanlega sölu banka til lífeyrissjóða. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pétur H. Blöndal hafa sent Helga Hjörvar, formanni efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis bréf þar sem þeir fara fram á fund í nefndinni til að ræða hugsanlega sölu banka til lífeyrissjóðanna.

Í bréfinu segir að þingmennirnir telji mikilvægt að upplýsa hvað sé hæft í þessum fréttum og hvaða áhrif þær geti haft á íslenskt efnahagslíf.

Óska þeir eftir því að forsvarsmenn Seðlabanka Íslands, lífeyrissjóða og slitastjórna ásamt fjármálaráðherra verði viðstaddir fundinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert