Hvaða áhætta felst í innflutningi á hráu kjöti?

mbl.is/Jim Smart

Bændasamtök Íslands halda opinn hádegisfund í Bændahöllinni, Hóteli Sögu, miðvikudaginn 3. apríl kl. 12:00-13:30. Fundarefnið er sú áhætta sem felst í innflutningi á hráu kjöti til landsins.

Í frétt frá Bændasamtökunum segir að sem kunnugt er hefur ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, gefið út bráðabirgðaniðurstöðu um að bann íslenskra stjórnvalda við innflutningi á hráu kjöti standist ekki ákvæði EES-samningsins.

Bændasamtökin segjast alla tíð haldið á lofti sterkum rökum sem mæla gegn innflutningi á hráu kjöti. Til að ræða þessi mál boða samtökin til hádegisfundar þar sem verða haldin tvö stutt erindi um málefnið og umræður á eftir.

Dagskrá

Smitsjúkdómastaða íslensks búfjár
Vilhjálmur Svansson, dýralæknir á Tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum

Innflutt fersk matvæli og sýkingaráhætta
Karl G. Kristinsson, prófessor og yfirlæknir á sýklafræðideild Landspítalans

Umræður í lok erinda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert