Forsetinn fundar með Sigmundi

Frá fundi Ólafs Ragnars Grímssonar og Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar skömmu …
Frá fundi Ólafs Ragnars Grímssonar og Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar skömmu eftir kosningar. mbl.is/Golli

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun funda á morgun með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, samkvæmt tilkynningu frá forsetaembættinu en fundurinn mun hefjast klukkan 9.00 í fyrramálið.

Fundarefnið er stjórnarmyndunarviðræður Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins sem staðið hafa yfir að undanförnu en Ólafur fól Sigmundi stjórnarmyndunarumboð 30. apríl síðastliðinn.

Flokksráð Sjálfstæðisflokksins og miðstjórn Framsóknarflokksins funda í kvöld um fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf og þær áherslur sem nýrri stjórn er ætlað að hafa samkvæmt málefnasamningi sem liggur fyrir, en fundirnir hefjast báðir klukkan 20.30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert