„Hvað vakir fyrir Ólafi Ragnari?

Björn Bjarnason.
Björn Bjarnason. Kristinn Ingvarsson

„Hvað vakir fyrir Ólafi Ragnari með þessu?“ spyr Björn Bjarnason, fv. ráðherra, í tilefni af þeim ummælum forsetans að hann hafi valið Sigmund Davíð Gunnlaugsson til að mynda stjórn vegna stefnu formannsins í skuldamálum heimilanna.

Mbl.is sagði frá ummælunum í vikunni.

Björn telur þau gagnrýniverð.

„Undarlegt er að lesa um að Ólafur Ragnar Grímsson segist hafa valið Sigmund Davíð Gunnlaugsson til að mynda ríkisstjórn á Íslandi af því að honum hugnaðist stefnan sem hann boðaði fyrir kosningar. Ólafur Ragnar fer hér enn einu sinni út fyrir hæfileg mörk í afskiptum af stjórnmálum og hann undirstrikar afskiptasemi sína með því að kalla Sigmund Davíð til sín á Bessastaði á morgun (í dag).

Hvað vakir fyrir Ólafi Ragnari með þessu? Að gera lítið úr Jóhönnu Sigurðardóttur og flokki hennar eða VG? Hann gerir Sigmundi Davíð eða nýrri ríkisstjórn engan greiða með þessu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert