Katrín nýtur mests trausts

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Í nýrri könnun MMR á trausti almennings til forystufólks í stjórnmálum sögðust flestir, eða 62,5% þeirra sem tóku afstöðu, bera mikið traust til Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Traust til Katrínar Jakobsdóttur hefur aukist frá síðustu mælingu þegar það mældist 44,4%.

Þá sögðust 56,2% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, 51,5% sögðust bera mikið traust til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra og 48,8% sögðust bera mikið traust til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra.

Spurt var: Hve mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila? Svarmöguleikar voru mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust, mjög mikið traust og veit ekki/vil ekki svara.

Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem svöruðu annaðhvort mjög/frekar mikið eða lítið traust.
Samtals tóku 97,5% afstöðu til spurningarinnar.

Samfylkingarfólk treystir Katrínu betur en Árna

Líkt og í fyrri mælingum njóta flokksformenn almennt mikils trausts meðal stuðningsmanna eigin flokka. Formenn allra flokka nutu trausts yfir 80% stuðningsfólks eigin flokka. Aðeins í tilfelli þeirra sem studdu Samfylkinguna ríkti meira traust til einstaklings sem tilheyrði öðrum flokki en til formanns flokksins. Þannig naut Katrín Jakobsdóttir trausts 93,4% þeirra sem studdu Samfylkinguna en Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, naut trausts 76,6% þeirra sem studdu Samfylkinguna.

Frá síðustu mælingu (21.2. 2013) varð mest aukning á trausti til Katrínar Jakobsdóttur, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar. Í síðustu mælingu sögðust 44,4% bera mikið traust til Katrínar Jakobsdóttur, borið saman við 62,5% nú, 28,2% sögðust bera mikið traust til Sigmundar Davíðs borið saman við 48,8% nú og 14,6% sögðust bera mikið traust til Bjarna Benediktssonar, borið saman við 33,8% nú.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1012 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 28 maí. til 1. júní 2013


MMR
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert