Guðni Páll hefur safnað 4 milljónum

Hópur fólks hélt í Ráðhús Reykjavíkur í dag til að vekja athygli á verkefni Guðna Páls Viktorssonar sem fer nú umhverfis landið á kajak til styrktar Samhjálp. Jón Gnarr borgarstjóri tók á móti hópnum en Guðni Páll hefur safnað tæpum fjórum milljónum til þessa en betur má ef duga skal þar sem töluvert fé þarf til að rekstur Samhjálpar gangi upp. 

Gísli Friðgeirsson kajakræðari fór í sambærilegan leiðangur fyrir fjórum árum og hann segir Guðna Pál vera að takast á við mikla þolraun sem reyni ekki síður á andlega þáttinn en þann líkamlega. Hér má lesa um róðurinn og hér er hægt að leggja söfnuninni lið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert