Ók ölvaður á ljósastaur

mbl.is/Eggert

Tilkynning barst til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um klukkan sex í morgun um ökumann sem hafði ekið á ljósastaur við gatnamót Snorrabrautar og Sæbrautar.

Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild til skoðunar og að henni lokinn var hann færður á lögreglustöð og vistaður í fangageymslu. Hann er grunaður um ölvun við akstur.

Skömmu áður var annar ökumaður stöðvaður grunaður um ölvunarakstur og færður á lögreglustöð. Honum var sleppt að lokinni sýnatöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert