Lundaveiðar leyfðar í sumar

Heimilt verður að veiða lunda í Vestmannaeyjum í sumar frá 19. júlí til 31. júlí. Þetta var ákveðið á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í gær. Á fundinn komu fulltrúar bjargveiðimanna og gerðu grein fyrir afstöðu sinni til veiða og gjaldheimtu. Mat þeirra var að heimila ætti einhverja opnun á veiðum og treysta veiðimönnum til að meta ástandið.

Bjargveiðimennirnir sögðust byggja mat sitt á árhundraða reynslu af nýtingu bjargfugla og vissulega hefði orðið forsendubrestur í viðkomu lundans vegna ætisskorts. Engu að síður töldu þeir óhætt að heimila takmarkaða veiði og þá ekki síst til að viðhalda verklagi, menningu og hefðum sem hvíla á árhundraða sögu.

Bæjarráð deilir áhyggjum með bjargveiðimönnum og tekur sérstaklega undir áhyggjur þeirra af því sem snýr að mikilvægi þess viðhalda menningu og hefðum svo fremi sem lundinn njóti ætíð vafans. Með slíkt í huga heimilar bæjaráð veiðina. Að þeim tíma liðnum verður óskað eftir upplýsingum frá bjargveiðimönnum, staðan metin á ný og þá tekin ákvörðun hvort heimila skuli veiði dagana frá 6. til 13. ágúst.

Gjaldheimta fyrir árið mun verða í samræmi við það sem verið hefur á seinustu árum þar sem gjald veltur fyrst og fremst á þeim dagafjölda sem veiðar verði heimilar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert