Áfram haldið þrátt fyrir óvissu

Áætlað er að nýr Landspítali rísi við Hringbraut en óljóst …
Áætlað er að nýr Landspítali rísi við Hringbraut en óljóst er hvort eða hvenær af því verður. mbl.is/Ómar Óskarsson

Örlög nýs Landspítala eru óljós, í ljósi stefnu ríkisstjórnarinnar um að endurskoða áformin um byggingu hans. Engu að síður verða umsóknir í forval, vegna útboðs á hönnun nýbygginga spítalans, opnaðar næsta fimmtudag, 18. júlí. Forvalið var auglýst í apríl, áður en ný ríkisstjórn tók við.

Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar er áhersla lögð á viðhald og endurbætur á núverandi húsa- og tækjakosti Landspítala, þar til varanleg lausn fæst. Hver sú varanlega lausn verður og hvenær hún kemst til framkvæmda er alls óvíst en Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur ítrekað gefið til kynna að breyta þurfi forgangsröðuninni í ríkisfjármálum.

Draumarnir gætu þurft að bíða

Nú síðast í gær sagðist heilbrigðisráðherra, á Sprengisandi á Bylgjunni, vilja vekja fólk til umhugsunar um hvort ekki megi láta ýmis verkefni bíða til að forgangsraða í þágu heilbrigðismála. „Við höfum ekki efni til þess að gera allt sem hugurinn stendur til í dag ef við viljum verja þessar grunnstoðir,“ sagði Kristján Þór. 

Til að hafa þennan málaflokk í lagi sagði hann að færa þurfi þær fórnir að bíða með einhver verkefni þangað til meiri verðmætasköpun hafi orðið. „Staða okkar sameiginlega sjóðs er með þeim hætti að ýmislegt sem við látum okkur dreyma um og viljum gjarnan gera gæti þurft að bíða, meðan við erum að ná tökum á því sem við viljum vernda,“ sagði heilbrigðisráðherra ennfremur. 

Í viðtalinu endurómuðu ummæli Kristjáns Þórs frá því á sumarþingi í júní þegar hann sagði að við gætum fyrst „farið að hugsa alvarlega um steypu“ þegar búið væri að vinna bug á þeim vanda sem við er að glíma í heilbrigðiskerfinu í dag. 

Útboð í síðasta lagi í maí 2014

Endanleg niðurstaða ríkisstjórnarinnar, um hvort og þá hvernig byggingu nýs Landspítala verður fram haldið, kemur væntanlega í síðasta lagi í ljós í fjárlögum fyrir árið 2014. Þangað til heldur áfram undirbúningur 1. áfanga uppbyggingar spítalans og verða umsóknir í forval vegna útboðs á hönnun bygginganna opnaðar hjá Ríkiskaupum á fimmtudaginn kl. 11.

Niðurstaða forvalsins verður tilkynnt 21. ágúst og gildir í 9 mánuði eftir það, fram í maí 2014. Innan þess tíma ætti útboð um hönnun að fara fram, en þeir fyrirvarar voru gerðir strax í upphafi að af því verði ekki nema verkefninu verði tryggð fjármögnun á fjárlögum.

Gunnar Svavarsson, formaður bygginganefndar um nýjan Landspítala, bendir á að í lögum um nýjan Landspítala (nr. 64/2010) sé framkvæmdin ekki tímasett. Um fjórar byggingar er að ræða, þ.e. sjúkrahótel, bílastæða- og skrifstofuhús, rannsóknarhús og meðferðarkjarna.

Gunnar segir þetta í raun fjóra verkhluta og mögulegt væri að bjóða út hluta verkefnisins eða allt í einu lagi, eftir því hvaða fjárheimildir fást. Forvalið sjálft er án skuldbindinga fyrir verkkaupa bæði um hvort og hvenær verkefnið verður boðið út og þá í hvaða áföngum.

Aðspurður hvort ekkert uppnám verði í ferli verkefnisins vegna óvissu um framhaldið segir hann svo ekki vera, enda verkið háð fjárveitingum Alþingis hverju sinni.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra á Alþingi.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra á Alþingi. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert