Lést í svifvængjaslysi í Sviss

Hulda Björk Þóroddsdóttir
Hulda Björk Þóroddsdóttir

Hulda Björk Þóroddsdóttir, 32 ára, lést í svifvængjaflugi skammt frá borginni Zürich í Sviss á laugardag.

Samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu Huldu Bjarkar var hún ásamt eiginmanni sínum og hópi annarra á skipulagðri æfingu í svifvængjaflugi en þau hjónin hafa búið í Zürich frá því í byrjun febrúar.

Í lokaæfingu undir stjórn leiðbeinanda lenti Hulda í aðstæðum sem hún réð ekki við og varafallhlíf náði ekki að draga nægilega úr falli. Var hún látin er að var komið, samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu hennar.

Hulda Björk og eiginmaður hennar, Jared Evan Bibler, störfuðu bæði hjá endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækinu Deloitte í Sviss.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert