Ótryggðir bílar á bílaleigu

Skjáskot af heimasíðu Cheap Jeep.
Skjáskot af heimasíðu Cheap Jeep. Skjáskot/cheapjeep.is

Lögreglan og samgöngustofa hafa nú mál bílaleigunnar Cheap Jeep til skoðunar. Er það eftir að tryggingafélag gerði viðvart um að bílar frá bílaleigunni væru ekki tryggðir. Leigutaki lenti í tjóni og þannig komst upp um að bíllinn var ótryggður.

Greint var frá málinu í kvöldfréttum Sjónvarpsins. Þar kom einnig fram að lögregla svipast um eftir tugum bíla frá bílaleigunni.

Eigandi bílaleigunnar bar við að hann hefði ætlað að tryggja bílinn en ekki náð að ljúka því áður en óhappið varð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert