Skyndilegt hvarf lundans í Grímsey

Lundi með nóg æti.
Lundi með nóg æti. Mynd/Fuglavernd/Jóhann Óli

„Það gerði brælu um mánaðamótin og þá bara hvarf nánast allur lundi úr eyjunni og við höfum enga haldbæra skýringu á  því,“ segir Bjarni Magnússon í Grímsey en hann hefur háfað lunda í eyjunni í áratugi. Hann segir málið mikið rætt á staðnum og ýmsar skýringar hafi verið nefndar. Þetta kemur fram í frétt Vikudags.

Lundaveiðin hefst venjulega 1. júlí og segir Bjarni að veiðin hafi verið frekar dræm. „Svo bara kom norðan bræla og hauga brim um síðustu mánaðamót og þá létu þeir sig hverfa,“ segir Bjarni. Í frétt Vikudags segir að Venjulega yfirgefi lundinn Grímsey seinnipartinn í ágúst.

Frétt Vikudags.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert