42 þúsund hafa skrifað undir

Yfir 42 þúsund hafa skrifað undir stuðningsyfirlýsingu um að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni. Meirihluti þeirra eru af höfuðborgarsvæðinu eða 53%.

Hjartað í Vatnsmýri hóf söfnun undirskrifta á föstudag á vefnum www.lending.is. Engin söfnun hefur farið jafn hratt af stað svo vitað sé, samkvæmt fréttatilkynningu.

„Skipting undirskrifta vekur athygli en 53% allra undirskrifta eru af höfuðborgarsvæðinu en 47% af landsbyggðinni,“ segir enn fremur í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert