Íslenskt sjávarfang og lambakjöt kynnt í Berlín

Þráinn Freyr Vigfússon, núverandi fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins, tekur þátt fyrir …
Þráinn Freyr Vigfússon, núverandi fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins, tekur þátt fyrir Íslands hönd.

Íslenskt sjávarfang og lambakjöt verða í aðalhlutverki í fjölmennri matarveislu sem haldin verður í húsakynnum þýsku verslunarkeðjunnar Frischeparadies í Berlín þann 1. september nk. Veislan er liður í kynningarátaki Frischeparadies á ferskum íslenskum hágæða afurðum sem stendur yfir í septembermánuði.

Íslandsstofa og sendiráð Íslands í Berlín eru samstarfsaðilar Frischeparadies í þessari kynningu. Markmiðið er að kynna íslenskt hráefni og vekja almenna athygli á Íslandi og íslenskri matarmenningu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslandsstofu.

Boðið verður upp á sjö rétta matseðil þar sem fimm réttir eru úr íslensku hráefni og mun Þráinn Freyr Vigfússon, núverandi fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins og matreiðslumaður ársins árið 2007, elda einn þessara rétta. Hina réttina elda þekktir þýskir matreiðslumenn. Nú þegar er uppselt í matarveisluna sem rúmar 300 manns og er þar um að ræða bæði boðsgesti auk almennings.

Í verslunum Frischeparadies er boðið upp á hágæða hráefni þar sem megináherslan er á kældar og ferskar afurðir, mest sjávarfang og kjöt. Frischeparadies er einnig stór dreifingaraðili á ferskum og kældum afurðum til þýskra smásölukeðja. Fyrirtækið hefur um all nokkurt skeið valið ferskar sjávarafurðir frá Íslandi sökum hreinleika, gæða og ábyrgrar nýtingar á fiskistofnum hér við land.  

Samhliða heimsókn sinni til Berlínar eldaði Þráinn Freyr íslenskan þorsk í matreiðslu-þættinum Berlin Kocht í morgun. Sendiherra Íslands í Þýskalandi, Gunnar Snorri Gunnarsson, var Þráni til halds og trausts í útsendingunni og kynnti íslenskar matvörur fyrir þýskum matgæðingum en um 180 þúsund Berlínarbúar horfa vikulega á þáttinn. Hann verður sendur út 4. október nk.

Ráðinn til starfa hjá Bláa lóninu

Þess má loks geta að Þráinn Freyr hóf nýverið störf sem matreiðslumeistari hjá Bláa Lóninu. Í tilkynningu frá Bláa lóninu, sem send var út í dag, segir að Þráinn sé á meðal fremstu matreiðslumeistara Evrópu, hann hafi náð einstökum árangri í alþjóðlegum matreiðslukeppnum Hann starfaði á Michelin stjörnu veitingastaðnum, Domaine de Clairfontane í Lyon, Frakklandi auk þess sem hann hefur starfað sem aðstoðaryfirmatreiðslumeistari á Grillinu og nú síðast yfirmatreiðslumeistari á Kolabrautinni í Hörpu.

Þráinn Freyr eldaði íslenskan þorsk í matreiðsluþættinum Berlin Kocht. Þátturinn …
Þráinn Freyr eldaði íslenskan þorsk í matreiðsluþættinum Berlin Kocht. Þátturinn var tekinn upp í dag en hann verður sýndur 4. október.
Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra segir frá íslenskri menningu og matarhefð …
Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra segir frá íslenskri menningu og matarhefð í þættinum.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert