Seldi 19 ára unglingum áfengi

AFP

Lögreglan á Suðurnesjum stóð um helgina eiganda veitingahúss í Keflavík að því að selja 19 ára pilti áfengi. Inni á stað mannsins voru tveir 19 ára piltar til viðbótar sem einnig voru með áfenga drykki. Auk þess hafði maðurinn aðeins leyfi til að selja áfengi til klukkan 23 en hún var nærri miðnætti þegar lögreglu bar að garði.

Rétt um miðætti var enn hópur fólks inni á staðnum  og var eigandanum þá gerð grein fyrir því að hann yrði að rýma húsnæðið. Það gerði hann en var afar ósáttur við afskipti lögreglu.

Mál af þessu tagi eru tilkynnt leyfisveitanda skemmtistaða, í þessu tilviki sýslumanninum í Keflavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert