Mikið að gera í sjúkraflutningum

Töluvert álag hefur verið á sjúkraflutningamönnum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í dag, meðal annars vegna þess að myndgreining á Landspítalanum var í lamasessi þegar öll þrjú tæki spítalans voru biluð á sama tíma.

Í dag voru skráðir 73 sjúkraflutningar og frá kl. 19.30 til klukkan 21.40 voru skráðir 11 sjúkraflutningar.

Þar sem sneiðmyndatæki Landspítalans í Fossvogi er enn bilað flytja sjúkraflutningamenn sjúklinga sem þurfa á slíku tæki að halda á Landspítalann við Hringbraut. Í dag þegar bæði sneiðmyndatækin voru biluð voru sjúklingar fluttir í Orkuhúsið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert