Ölvuð rjúpnaskytta án veiðikorts

Lögreglan í Borgarnesi hafði afskipti af rjúpnaskyttu sem ók bifreið undir áhrifum áfengis er hann var að aka áleiðis að Langavatni í Mýrasýslu á fjórða tímanum í dag. Til að bæta gráu ofan á svart var maðurinn ekki með veiðikortið meðferðis. Skyttan má búast við hárri fjársekt.

Lögreglan færði manninn á lögreglustöð í Borgarnesi og þar var tekin blóðprufa og skýrsla af manninum. Honum var síðan sleppt, en lögreglan lítur málið alvarlegum augum enda maðurinn ölvaður með byssu í bílnum.

Ekki fylgir sögunni hvort fleiri hafi verið með skyttunni í för. 

Aðspurð segir lögreglan að svona mál heyri sem betur fer til undantekninga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert