Vítamínbættir Flúðasveppir væntanlegir á markað

Með lýsingu er hægt að auka Dvítamínmagn þeirra allt að …
Með lýsingu er hægt að auka Dvítamínmagn þeirra allt að áttfalt.

Hjá Flúðasveppum er nú unnið að því að auka D-vítamínmagn í sveppum. Það er gert með því að lýsa sveppina og gangi áætlanir eftir munu þessir vítamínbættu sveppir fást í verslunum fyrir jólin.

Að sögn Georgs Ottóssonar, eiganda og framkvæmdastjóra Flúðasveppa, er þetta unnið í samstarfi við Matís og til þess að ná þessu fram þarf að lýsa sveppina í um 20 mínútur.

„Ég frétti af þessu frá Bandaríkjunum fyrir um einu og hálfu ári og hef síðan þá verið að gera tilraunir með þetta. Niðurstöðurnar lofa góðu,“ segir Georg í samtali í Morgunblaðinu í dag. „Það er örlítið magn D-vítamíns í sveppum, en með því að lýsa þá er hægt að áttfalda magnið.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert