Unnið að hreinsun og kælingu Fernöndu

Áhöfn varðskipsins Þórs og slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafa í morgun verið um borð í flutningaskipinu Fernöndu. Enginn eldur er sjáanlegur og er skipið að kólna. Ákveðið hefur verið að halda áfram að hreinsun og kælingu skipsins í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Þá segir, að á morgun verði tekin ákvörðun um framhaldið í samráði við hlutaðeigandi aðila, þ.e. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Umhverfisstofnun, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins,Hafrannsóknarstofnun, Samgöngustofu, hafnaryfirvöld Faxaflóahafna og Hafnarfjarðarhöfn, lögreglu, eigendur skipsins og tryggingafélag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert