Hægt að skíða í Oddsskarði í dag

Skíðasvæðið í Oddsskarði.
Skíðasvæðið í Oddsskarði.

Fyrsti opnunardagur skíðasvæðisins í Oddsskarði er í dag og verður ein lyfta opin að sögn Dagfinns S. Ómarssonar, forstöðumanns Skíðamiðstöðvar Austurlands í Oddsskarði. Svæðið verður opið frá klukkan 11 til 15 í dag.

Að sögn Dagfinns lítur svæðið vel út og er troðinn púðursnjór í gilinu. Stefnt er að því að opna byrjendalyftuna næstu helgi.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert