Nýtt aðalskipulag samþykkt með tólf atkvæðum gegn þremur

Ernir Eyjólfsson

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti rétt í þessu nýtt aðalskipulag borgarinnar til ársins 2030. 12 borgarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni en 3 gegn.

Skipulagið verður nú sent til Skipulagsstofnunar til staðfestingar

Aðalskipulagið 2010-2030 er endurskoðun á eldra aðalskipulagi fyrir árin 2001-2024. Tillagan var kynnt í samræmi við 30-31. gr skipulagslaga. Aðalskipulagstillagan var kynnt á tímabilinu 9. ágúst til 20. september 2013 en þá rann út frestur til að gera athugasemdir. Tillagan var kynnt samhliða breytingum á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Alls bárust 206 bréf með athugasemdum frá einstaklingum, fyrirtækjum, íbúasamtökum, félagasamtökum og hópum sem stóðu að undirskriftarsöfnunum. Bréfin varða a.m.k. 250 efnisatriði í tillögunni, langflest varða þó flugvöllinn í Vatnsmýrinni. Öllum athugasemdum hefur verið svarað.

Athugasemdirnar  og svör við þeim voru lagðar fram í umhverfis- og skipulagsráði 25. september og hefur ráðið farið vandlega yfir þær á alls sjö fundum.

Helstu breytingar á auglýstri tillögu

Helsta breytingin á auglýstri tillögu snýst um tímasetningar vegna samkomulags Reykjavíkurborgar, ríkisins og Icelandair  Group um innanlandsflug en það gerir ráð fyrir að norður-suður flugbraut flugvallarins í Vatnsmýri verði áfram í aðalskipulaginu fram til ársins 2022 í stað 2016.

Þá eru sett skýrari markmið um mögulega uppbyggingu norðan Suðurlandsbrautar um að ekki verði gengið á opin græn svæði eða þrengt að íþróttastarfsemi í Laugardal. Þá var einnig komið til móts við fjölmargar athugasemdir frá landeigendum á Kjalarnesi vegna nýtingar á þeirra landi.

Engar grundvallarbreytingar voru gerðar á stefnu aðalskipulagsins vegna athugasemdanna.

Víðtækt kynningarferli á vinnslutímanum

Endurskoðun á aðalskipulaginu hefur staðið yfir undanfarin ár og falist í margvíslegri greiningarvinnu, mati valkosta og samráði við íbúa og hagsmunaaðila. Haldnir voru íbúafundir í öllum hverfum borgarinnar árið 2009 og aftur vorið 2012 þar sem íbúum gafst kostur á að skoða drög að aðalskipulaginu, koma með ábendingar og gera við það athugasemdir. Að auki voru haldnir fjölmargir aðrir kynningarfundir í tengslum við vinnu á aðalskipulaginu.

Borg fyrir fólk

Aðalskipulaginu 2010 – 2030 er skipt í fjögur meginþemu sem nefnast Borg fyrir fólk, Borgin við sundin, Græna borgin og  Skapandi borg.

Borg fyrir fólk er leiðarvísirinn í nýju aðalskipulagi og tekur stefnumótunin mið af því. Lögð er sérstök áhersla á hverfin og einstaka borgarhluta. Markmiðið er að hverfi borgarinnar verði sjálfbærari, mannvænni og fjölbreyttari þar sem allir félagshópar fá tækifæri til búsetu. Hvert hverfi hafi sinn kjarna svo dagleg verslun og þjónusta verði í sem mestri nálægð við íbúa.

Þétting í stað útþenslu

Aðalskipulag 2010 - 2030 gerir ráð fyrir að 90% allra nýrra íbúða á tímabilinu rísi innan núverandi marka borgarinnar. Markmiðið er að skapa heildstæðari og þéttari borgarbyggð og nýta þar með betur land og fjárfestingar í gatna- og veitukerfum og þjónustustofnunum. Með þéttari byggð er dregið úr vegalengdum, samgöngukostnaði og umhverfisáhrifum samgangna.

Verkefni næstu áratuga er að fullbyggja „Borgina við Sundin“ og því er uppbyggingu nýrra hverfa í útjaðri borgarinnar slegið á frest.

Í kaflanum umgrænu borginaer gert ráð fyrir að 40% lands verði opin svæði innan þéttbýlis Reykjavíkur ætluð til útivistar, afþreyingar og leikja. Reykjavíkurborg hefur mikinn metnað til að verða grænni og vistvænni og þar gegna samgöngur mikilvægu hlutverki. Stefnt er að því að hlutdeild almenningssamgangna í ferðum til og frá vinnu vaxi úr 4% í 12% á tímabilinu og hlutdeild gangandi og hjólandi vaxi úr 21% í 30%.

Hlutverk höfuðborgar styrkt í skapandi borg

Í nýju aðalskipulagi er lögð áhersla á að Reykjavík verði skapandi borgmeð öflugt og fjölbreytt atvinnulíf. Markmið aðalskipulagsins er að viðhalda fjölbreytni og styrk atvinnulífsins og skapa vaxtarskilyrði fyrir nýjar atvinnugreinar, einkum á sviði hátækni, grænnar orkunýtingar og menningar. Lögð er áhersla á að Reykjavík styrki hlutverk sitt sem höfuðborg landsins og verði forystuafl í vaxandi alþjóðlegri samkeppni um fyrirtæki, vinnuafl og ferðamenn.

„Þetta aðalskipulag er tímamótaplagg í skipulagsmálum. Með því leggjum við undirstöðuna að sterkri stöðu Reykjavíkur í framtíðinni og búum til betri borg. Nýtt aðalskipulag mun hjálpa okkur að ná þeim markmiðum að gera Reykjavík að vistvænni, grænni, skapandi og skemmtilegri borg sem gott er að búa í og heimsækja hér við sundin blá,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri. 

Sæmileg sátt ríki um skipulagið

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert