Mörg fyrirtæki með stór verkefni

Sigurður Lárusson og Hjálmar Björnsson í Slippnum á Akureyri í …
Sigurður Lárusson og Hjálmar Björnsson í Slippnum á Akureyri í gær. Þar er unnið við smíði á vinnslulínu o.fl. í tvo erlenda frystitogara. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Nærri lætur að á þessu ári og áfram á næstu mánuðum verði unnið hér á landi að verkefnum fyrir einn og hálfan milljarð króna við hönnun og smíði tækja og búnaðar í tvö frystiskip sem eru í smíðum í Tyrklandi.

Mörg íslensk fyrirtæki koma að verkefnunum og eiga þau öll það sameiginlegt að hafa staðist alþjóðlega samkeppni hvað varðar verð, gæði og tækni. Sum þessara verkefna eru mjög mannaflsfrek, en önnur kalla frekar á tæknivinnu og lausnir, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Um er að ræða tvo frystitogara sem verið er að smíða rétt við Istanbúl. Annað skipanna er í eigu UK Fisheries í Bretlandi, sem er í helmings eigu Samherja á Akureyri. Hitt skipið er smíðað fyrir þýskt fyrirtæki, en eigendur þess eiga jafnframt helming í UK Fisheries á móti Samherja.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert