Skólastjóri Rimaskóla fær Barnamenningarverðlaun

Hrafn Jökulsson og Helgi Árnason, skólastjóri Rimaskóla, fylgjast með skák …
Hrafn Jökulsson og Helgi Árnason, skólastjóri Rimaskóla, fylgjast með skák í Hörpu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Helgi Árnason, skólastjóri Rimaskóla, hlýtur Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2013 fyrir ötult starf í þágu skáklistar sem hluta af skólastarfi. Verðlaununum fylgja ein milljón króna og skulu 500.000 renna til skákstarfsemi í Rimaskóla og 500.000 til Skákskóla Íslands. Alls hefur verið úthlutað 36 milljónum úr Velferðarsjóði barna á árinu 2013 en heildarúthlutun frá stofnun sjóðsins nemur um 750 milljónum króna.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þetta er í 9. sinn sem Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna eru veitt og afhendir Kári Stefánsson verðlaunin í Iðnó í dag. Helgi Árnason hlýtur verðlaunin að þessu sinni fyrir ötult starf hans í þágu skáklistar meðal barna og þróun greinarinnar sem hluta af skólastarfi. Gildi skáklistarinnar er óumdeilt í skólastarfi og hefur Rimaskóli tekið þátt í öllum Reykjavíkur- og Íslandsmótum frá stofnun skólans og unnið til fjölda verðlauna. M.a. hefur Rimaskóli sex sinnum orðið Norðurlandameistari og 12 sinnum á árunum 2003-13 tekið þátt í Norðurlandamótum og náð þar einstökum árangri sem enginn annar grunnskóli á Norðurlöndum hefur náð.

Helgi átti þátt í stofnun Skákakademíu Reykjavíkur og Skákskóla Íslands sem halda námskeið fyrir börn sem hafa áhuga á skák. Með ötulu starfi sínu í þágu skáklistarinnar í Rimaskóla hefur hann sýnt fordæmi og átt stóran þátt í útbreiðslu þessa mikilvæga námsefnis, segir í fréttatilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka