Gunnar Nelson berst á ný

Gunnar Nelson.
Gunnar Nelson. Eggert Jóhannesson

Bardagakappinn Gunnar Nelson mætir aftur til leiks í UFC þann 8. mars á næsta ári og mun bardaginn fara fram í London. Mun hann mæta Omari Akhmedov frá Rússlandi. Þetta kemur fram á vefsíðu MMA-frétta.

Þetta verður þriðji bardagi Gunnars í UFC. Átti hann að keppa við Mike Pyle í maí síðastliðnum en þurfti að draga sig úr keppni vegna meiðsla. Gekkst hann undir aðgerð á hné í kjölfarið.

Gunnar er enn ósigraður í UFC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert