Albanarnir loks úr landi

Kolbeinn Sigþórsson og Lorik Cana, fyrirliði Albaníu í hörku baráttu.
Kolbeinn Sigþórsson og Lorik Cana, fyrirliði Albaníu í hörku baráttu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrettán Albanir sem mættu ekki í flug eftir leik Íslands og Albaníu sem fram fór í september voru sendir heim með leiguflugi í fylgd sérsveitarmanna Ríkislögreglustjóra á fimmtudagsmorgun. Þetta kemur fram í frétt á Vísi.

Fjórir úr hópnum sóttu um hæli hér á landi. 

Samkvæmt upplýsingum Vísis skipulagði ríkislögreglustjóri aðgerðina við að koma mönnunum úr landi í samráði við Útlendingastofnun.

Frétt mbl.is: Ekkert vitað um afdrif níu Albana



Íslensku leikmennirnir fagna marki Gylfa Sigurðssonar gegn Albönum í Tírana.
Íslensku leikmennirnir fagna marki Gylfa Sigurðssonar gegn Albönum í Tírana. EPA
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert