Ótryggður með bilaða hemla

mbl.is/Eggert

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á jeppabifreið í kjölfar umferðaslyss sem varð á Kringlumýrarbraut kl. 13:38 í dag. Það kom í ljós að jeppinn, sem ók aftan á tvær bifreiðar, var ótryggður og með útrunna endurskoðun vegna hemla. Tveir voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn.

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru bifreiðarnar tvær á sömu akrein og jeppinn en á undan honum. Ökumenn bifreiðanna voru að hægja á sér vegna bíls sem hafði bilað, en sá bíll var einnig á sömu akrein og allir hinir bílarnir. Lögreglan segir að ökumaður bilaða bílsins hafi verið að reyna að koma honum af akreininni þegar áreksturinn varð. 

Jeppinn er nú í geymslu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert