Tíð almennt lakari en síðustu ár

Rigningardagur í borginni
Rigningardagur í borginni Ómar Óskarsson

Tíð var almennt talin lakari heldur en hin síðustu ár. Sumarið var óhagstætt um landið sunnan- og vestanvert en fyrstu tveir mánuðirnir voru óvenju hlýir um land allt. Þetta segir í bráðabirgðayfirliti Veðurstofu Íslands yfir tíðafar ársins 2013.

„Sumarið var talið óhagstætt um landið sunnan- og vestanvert. Óvenjuleg hlýindi voru fyrstu tvo mánuði ársins en í öðrum mánuðum var hiti nærri meðallaginu 1961 til 1990, einna kaldast að tiltölu í apríl en þá var mikill og þrálátur snjór til ama víða um landið norðanvert. Óvenju snarpt kuldakast gerði um mánaðamótin apríl/maí og þá mældist meira frost en áður hefur mælst hér á landi í maímánuði,“ segir í yfirlitinu.

Þá segir að Júní hafi verið mjög hlýr um landið norðaustanvert en syðra hafi verið dauf tíð og úrkomusöm. Síðasti þriðjungur júlímánaðar var mjög hlýr og hagstæður og þá mældist mesti hiti sem vitað er um á hálendi landsins. Að öðru leyti hafi tíð verið óhagstæð um landið sunnan- og vestanvert. „Þungbúið veður og þrálát úrkoma hélt áfram syðra í ágúst en hagstæðari tíð var á landinu norðaustanverðu. Kalt var í september og tíð óhagstæð. Um miðjan mánuð gerði mikið norðanveður með snjóum nyrðra og nokkrum sköðum.“

Október var óvenjuþurr um landið vestanvert, vindar lengst af hægir og snjólétt á landinu meginhluta mánaðarins. Nóvember var svo umhleypingasamur með meira móti. Kalt var framan af en hlýtt síðustu dagana. Desember var óvenjuúrkomusamur um landið austanvert.

Kaldast suðvestanlands frá árinu 2000

Árið þótti hlýtt, hiti var á bilinu 0,4 til 1,0 stigum yfir meðallaginu 1961 til 1990. Hlýjast að tiltölu var austanlands en kaldast suðvestanlands. En þótt hlýtt hafi verið, var árið engu að síður í flokki þeirra kaldari á nýrri öld. Suðvestanlands það kaldasta frá árinu 2000 en í öðrum landshlutum lítillega kaldara eða mjög svipaður hiti á árunum 2005 og 2011.

Úrkoma í Reykjavík var um í rétt rúmu meðallagi. Úrkoma var langt yfir meðallagi í janúar og febrúar og í öllum mánuðunum frá júní til og með september. Úrkoma var hins vegar langt undir meðallagi í mars og nóvember.

Á Akureyri var úrkoman um 20% umfram meðallag og er þetta 12. árið í röð á Akureyri með úrkomu yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Sérlega úrkomusamt var á Akureyri í maí, október og desember.

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 82 fleiri en í meðalári 1961 til 1990, en 32 færri á Akureyri. Sólskinsstundafjöldinn í Reykjavík hefur nú verið yfir meðallaginu 1961 til 1990 í 14 ár í röð.

Veðuryfirlit Veðurstofu Íslands

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert