Ræddu um jarðhita og fríverslun

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Nobuteru Ishihara, umhverfisráðherra …
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Nobuteru Ishihara, umhverfisráðherra Japans. Ljósmynd/Umhverfis- og auðlindaráðuneytið

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fundaði í dag með Nobuteru Ishihara, umhverfisráðherra Japans, í Tókíó höfuðborg Japans. Fram kemur í fréttatilkynningu að ráðherrarnir hafi rætt um ýmis umhverfismál, þar á meðal um loftslagsmál og hlutverk endurnýjanlegrar orku til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Einnig hafi önnur mál varðandi samstarf Íslands og Japans borið á góma. Þar á meðal mögulegan fríverslunarsamning EFTA og Japans og ósk Íslands um að gera loftferðasamning við Japan.

„Ráðherra er nú í vinnuheimsókn í Japan, þar sem hann hittir ráðamenn og kynnir sér samstarf Íslands og Japans á ýmsum sviðum. Ishihara heimsótti Ísland síðastliðið sumar og kynnti sér þá m.a. reynslu Íslands af nýtingu jarðhita. Japanir hafa hug á að nýta jarðhita í auknum mæli til að mæta orkuþörf sinni, en notkun kjarnorku hefur dregist saman þar í landi eftir slysið í Fukushima-verinu og vilji er til þess að nýta endurnýjanlega orku fremur en jarðefnaeldsneyti til að fylla skarð kjarnorkunnar. Ishihara tilkynnti á fundinum að Japan hygðist senda sendinefnd til Íslands á vegum japönsku orkustofnunarinnar, JOGMEG, til að fylgja frekar eftir því samstarfi sem komið er á í jarðhitamálum,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Ráðherrarnir hafi ennfremur rætt um stöðuna í alþjóðlegum loftslagsviðræðum, en stefnt sé að nýju alþjóðlegu samkomulagi í loftslagsmálum í lok næsta árs. Ráðherrarnir hafi verið sammála um að auk hnattræns samkomulags væri æskilegt að stuðla að útbreiðslu loftslagsvænnar tækni. Þá ekki síst í þróunarríkjunum.

„Fyrr um daginn heimsótti Sigurður Ingi aðalstöðvar Háskóla Sameinuðu þjóðanna í Tókýó og átti fund með David Malone, rektor Háskólans. Malone þakkaði Íslandi fyrir framlag sitt til Háskólans, en fjögur þjálfunarverkefni eru rekin á vegum hans á Íslandi; á sviði jarðhitanýtingar, sjávarútvegs, landgræðslu og jafnréttismála. Á fundi ráðherranna kom fram vilji til þess að efla samstarf ríkjanna enn frekar, en Japanir hyggjast formlega opna sendiráð á Íslandi nú í vor með sendiherra í Reykjavík, en japönsk sendiskrifstofa hefur verið starfandi hér um hríð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka