Egilsstaðaflugvöllur sá arðbærasti

Egillstaðaflugvöllur er arðbærasti flugvöllur landsins.
Egillstaðaflugvöllur er arðbærasti flugvöllur landsins. mbl.is/Sigurður Bogi

Arðbærasti flugvöllur landsins er Egilsstaðaflugvöllur. Þjóðhagslegur ábati af flugi á þann völl nemur tæpum 52 milljörðum króna á tímabilinu 2013-2053. Til samanburðar er flugið á Vestmannaeyjaflugvöll þjóðhagslega óhagkvæmt um rúmlega 2,8 milljarða króna á verðlagi ársins 2013.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um félagshagfræðilega greiningu á framtíð innanlandsflugs innanlands sem birt var í dag á vefsíðu Innanríkisráðuneytisins. 

Markmið félagshagfræðilegrar greiningar er að meta þjóðhagslegan ávinning eða tap með kostnaðar/ábatagreiningu en huga jafnframt að samfélagslegum ávinningi sem ekki verður mældur í krónum og aurum svo sem búsetugæðum. Með þessari aðferð má greina á milli arðsemi mismunandi valkosta.

Núvirtur ábati 70,8 milljarðar króna

Samkvæmt niðurstöðum ábatagreiningarinnar er núvirtur ábati af innanlandsflugvallakerfinu á landsbyggðinni í heild um 70,8 milljarðar króna á verðlagi ársins 2013 miðað við arðsemistímann 2013-2053. 

Þar munar mestu um ábata notenda af notkun flugsins og ábata vegna aukins öryggis í samgöngum. Þjóðhagslegur ávinningur samfélagsins af útgjaldakrónu hins opinbera til flugvallanna og flugsins í heild er 1,48 krónur, segir í skýrslunni. Þjóðhagsleg arðsemi fjárfestingarinnar í flugvallakerfinu og fluginu á landsbyggðinni umfram útgjöld er 48%.

Þar af er 251% samfélagsleg arðsemi af Egilsstaðaflugvelli og flugleiðinni „Egilsstaðir – Reykjavík“, 45% samfélagsleg arðsemi af Ísafjarðarflugvelli og flugleiðinni „Ísafjörður – Reykjavík“ og 41% samfélagsleg arðsemi af Akureyrarflugvelli og flugleiðinni „Akureyri – Reykjavík“. Af öðrum flugvöllum er neikvæð samfélagsleg arðsemi.

Vestmannaeyjaflugvöllur óhagkvæmur

Fjórir flugvellir og flugleiðir eru þjóðhagslega hagkvæmir/ar:

  • Egilsstaðaflugvöllur og flugleiðin Egilsstaðir – Reykjavík.
  • Akureyrarflugvöllur og flugleiðin Akureyri – Reykjavík.
  • Ísafjarðarflugvöllur og flugleiðin Ísafjörður – Reykjavík.
  • Húsavíkurflugvöllur og flugleiðin Húsavík – Reykjavík. 

Tveir flugvellir eru hagkvæmir en eru þó rétt við núllið:

  • Bíldudalsflugvöllur og flugleiðin Bíldudalur – Reykjavík.
  • Grímseyjarflugvöllur og flugleiðin Grímsey – Akureyri. 

Aðrir flugvellir og flugleiðir eru þjóðhagslega óhagkvæmir/ar:

  • Hornafjarðarflugvöllur og flugleiðin Hornafjörður - Reykjavík.
  • Vestmannaeyjaflugvöllur og flugleiðin Vestmannaeyjar – Reykjavík.
  • Þórshafnarflugvöllur og flugleiðin Þórshöfn – Akureyri.
  • Vopnafjarðarflugvöllur og flugleiðin Vopnafjörður – Akureyri.
  • Gjögurflugvöllur og flugleiðin Gjögur – Reykjavík.
Vestmannaeyjaflugvöllur er þjóðhagslega óhagkvæmur.
Vestmannaeyjaflugvöllur er þjóðhagslega óhagkvæmur.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert