Í vanda á Sólheimaheiði

Björgunarsveitin Víkverji frá Vík í Mýrdal fór til að aðstoða …
Björgunarsveitin Víkverji frá Vík í Mýrdal fór til að aðstoða fólkið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Björgunarsveitin Víkverji frá Vík í Mýrdal er nú á leið á Sólheimaheiði þar sem ferðafólk er í vanda. Um er að ræða 11 manns sem voru á ferð í Econoline bifreið og misstu þeir hana út af veginum.

Bíllinn er fastur og hallar mikið en þó ekki oltinn. Tveir bílar frá björgunarsveitinni eru á leið á staðinn og munu þeir flytja ferðafólkið til byggða. Veður er vont á svæðinu, gengur á með skafrenningi og hvössum vindi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert