Markmiðið er útrýming fátæktar

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra var á meðal fundarmanna á fundi …
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra var á meðal fundarmanna á fundi þróunarnefndar Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. mynd/Alþjóðabankinn

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra flutti í gær yfirlýsingu fyrir hönd Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á fundi þróunarnefndar Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Nefndin sinnir pólitískri stefnumörkun og hefur víðtæk áhrif á stefnumótun í alþjóðlegri þróunarsamvinnu.

Þetta kemur fram í tilkynnningu frá utanríkisráðuneytinu.

Fram kemur að í ræðu sinni hafi Gunnar Bragi lagt áherslu á þrjá þætti í áframhaldandi starfi bankans svo hann nái markmiðum sínum um útrýmingu fátæktar. Allir eigi hlutdeild í hagvexti, sjálfbær nýting náttúruauðlinda og jafnrétti kynjanna séu lykilatriði í að ná árangri.

Þá segir, að á fundinum hafi verið rætt um framvæmd nýrrar stefnu Alþjóðabankans, hvernig bankinn geti betur brugðist við fyrirliggjandi áskorunum, styrkt hagvöxt og jafnræði í þróunarríkjum, ekki síst í kjölfar efnahagserfiðleika undanfarinna sex ára. 

Í upphafi fundar sagði Jim Kim, forseti Alþjóðabankans, að efnahagslegar þrengingar og minnkandi hagvöxtur heimsins hafi sett sitt mark á starf bankans og þá hafi snjallsímar breytt væntingum fólks í þróunarríkjum um lífskjör enda sjái það betur og betur hvernig fólk lifir annars staðar í heiminum.

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, fjallaði um atvinnuleysi í Evrópusambandslöndunum og að nýmarkaðssvæði haldi áfram að vera uppruni hagvaxtar. Sjóðurinn myndi leggja áherslu á umhverfismál og stuðla að minni stéttaskiptingu í sínu starfi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert