Fært um Steingrímsfjarðarheiði

mbl.is/Gúna

Éljagangur á Hellisheiði en greiðfært samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálkublettir eru ennfremur á Mosfellsheiði líkt og víða í uppsveitum og á útvegum á Suðurlandi. Vestanlands er snjóþekja og á Holtavörðuheiði er skafrenningur og snjóþekja á Bröttubrekku. Annars er víða hálka eða hálkublettir.

Gengið hefur á með éljum á Vestfjörðum og þar eru víða hálka á láglendi en sums staðar snjóþekja eða hálka á fjallvegum. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Mikladal og Hálfdán en snjóþekja á Kleifarheiði. Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Ófært er norður í Árneshrepp.

Norðanlands er snjóþekja og skafrenningur á Öxnadalsheiði og hálkublettir á Þverárfjalli og Vatnsskarði, annars eru hálkublettir á nokkrum útvegum. Greiðfært er að heita má um allt austanvert landið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert