Földu fé í fjölda félaga

Skattrannsóknarstjóra hafa verið boðnar upplýsingar um hundruð íslenskra félaga sem skráð voru í skattaskjólum árin fyrir hrunið. Embættinu hafa borist slík tilboð frá útlöndum og hafa engar ákvarðanir verið teknar um hvort ganga eigi til samninga við þá aðila. Er það nú til skoðunar hjá embættinu.

Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri staðfestir þetta en í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir hún að bæði lagalegar og siðferðilegar spurningar vakni við ákvörðun um kaup á slíkum gögnum.

„Við vitum ekki hverjir hafa þessi gögn í fórum sínum. Þeir koma fram undir dulnefni og hafa samband við okkur í gegnum tölvupóst. Embættið gæti tæpast sjálft tekið ákvörðun um að kaupa slík gögn. Þó ekki kæmi til önnur ástæða en sú að til þess þyrfti fjármuni. Að einhverju leyti yrði slík ákvörðun því pólitísk,“ segir Bryndís.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert