Fara með málið til dómstóla

Vísir hf. Grindavík
Vísir hf. Grindavík mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Fulltrúar verkalýðsfélagsins Framsýnar funduðu í gær ásamt lögmönnum félagsins með forsvarsmönnum og lögfræðingum Vinnumálastofnunar. „Tilefnið var ákvörðun fiskvinnslufyrirtækisins Vísis hf. að beina starfsmönnum fyrirtækisins á Húsavík á atvinnuleysisbætur 1. maí í stað þess að greiða þeim kjarasamningsbundinn uppsagnarfrest þar sem fyrirtækið hefur ákveðið að loka starfstöð fyrirtækisins á Húsavík og flytja starfsemina til Grindavíkur,“ samkvæmt fréttatilkynningu.

„Á fundinum með Vinnumálastofnun gerðu fulltrúar Framsýnar alvarlegar athugasemdir við ákvörðun Vísis hf. um að senda starfsmenn á atvinnuleysisbætur í stað þess að greiða þeim   uppsagnarfrest. Í máli forsvarsmanna Vinnumálastofnunar kom fram að þeir munu eiga fund með fulltrúum Vísismanna á morgun, föstudag, og fara yfir málið með þeim. 

Eftir fundinn með Vinnumálastofnun tók Framsýn ákvörðun um að krefjast þess að Vísir hf. staðfesti skriflega að laun starfsmanna á Húsavík verði greidd réttilega um næstu mánaðarmót. Slík staðfesting liggi fyrir í síðasta lagi 14. maí næstkomandi,“ segir ennfremur í tilkynningu.

Verði ekki orðið við áskorun þessari og yfirlýsing gefin út í samræmi við ofanritað innan frests er einboðið að líta svo á að fyrirtækið muni vanefna skyldu sína til greiðslu launa samkvæmt kjarasamningi. Þar með mun Framsýn leita fulltingis dómstóla til að fá hlut félagsmanna sinna réttan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert