Vildu allar íbúðir í nýrri blokk í Kópavogi

Fjárfestar höfðu áhuga á að kaupa fjölda íbúða í blokk …
Fjárfestar höfðu áhuga á að kaupa fjölda íbúða í blokk sem er í byggingu í Mánatúni í Reykjavík. mbl.is/RAX

Samtöl við nokkra fasteignasala leiddu í ljós að fjársterkir aðilar hafa ríkan áhuga á að kaupa íbúðarhúsnæði í fjárfestingarskyni. Ófullkláruð hús eru ekki undanskilin.

Að sögn Vilhjálms Einarssonar, fasteignasala hjá Eignaborg, sýndi fjársterkur aðili áhuga á að kaupa 16 íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum sem eru í byggingu í Kópavogi.

Íslenskur aðili sem kynnti sig sem fulltrúa erlends fjárfestis hefði átt í samningaviðræðum við verktakann í einn og hálfan mánuð. Síðastliðinn mánudag hefðu samningaviðræður hins vegar fallið niður, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka