Þorbergur Ingi með forystu á Laugavegi

Það var léttur úði þegar hlaupið var ræst frá Landmannalaugum …
Það var léttur úði þegar hlaupið var ræst frá Landmannalaugum kl. 9 í morgun. Ljósmynd/Anna Lilja Sigurðardóttir

Alllt gengur vel í Laugavegshlaupinu sem ræst var í morgun kl.9 í Landmannalaugum. Veðrið í Þórsmörk er mjög gott, logn og sést öðru hvoru til sólar, að sögn talsmanna hlaupsins.

Þorbergur Ingi Jónsson er með nokkuð örugga forystu í hlaupinu og nálgast nú Ljósá sem er í um 7 km fjarlægð frá markinu í Húsadal í Þórsmörk.

Sjá einnig: Hlaupa á vit öræfanna

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert