Íkveikja við Fellaskóla

Fellaskóli
Fellaskóli Ernir Eyjólfsson

Skömmu fyrir tvö í nótt var slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað að Fellaskóla vegna eldsvoða. Í ljós kom að kveikt hafði verið í á nokkrum stöðum á skólalóðinni.

Þegar slökkvilið og lögreglu bar að var búið að slökkva eldinn en kveikt hafði verið í gervigrasi og skrauti víðsvegar um skólalóðina. Ekki er vitað hverjir voru þarna að verki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert