Óvissustigi aflétt

Múlakvísl í nokkrum ham fyrir nokkrum dögum.
Múlakvísl í nokkrum ham fyrir nokkrum dögum. mbl.is/Jónas Erlendsson

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Hvolsvelli ákveðið að aflétta óvissustigi vegna vatnavaxta og hlaupa í Múlakvísl og Jökulsá á Sólheimasandi. Rafleiðnin í Múlakvísl og Jökulsá á Sólheimasandi er komin aftur í sama horf og fyrir hlaup. Á síðustu dögum hefur úrkoma haft áhrif á rennsli beggja ánna, sérstaklega Múlakvíslar.

Í frétt á Facebook-síðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra segir að gasmælingar sýni samt sem áður að hættulegar gastegundir séu í jarðhitavatni sem rennur undan jöklinum. Þá hefur rafleiðni aukist í Markarfljóti við Einhyrningsflatir, sem getur bent til að jarðhitavatn renni einnig í Markarfljót frá Mýrdalsjökli eða öðrum upptakasvæðum í nágrenninu. 

„Þó svo að óvissustigi sé hér með aflétt vegna Múlakvíslar og Jökulsár á Sólheimasandi er mikilvægt að ferðaþjónustufyrirtæki og ferðamenn sýni sérstaka varkárni við Sólheimajökul vegna mögulegrar gas- og flóðahættu. Ferðamenn sem fara á það svæði eru hvattir að nota frekar eldri stíginn í hlíðinni, sem liggur frá efra bílastæðinu,“ segir í frétt almannavarnadeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert