Einn fékk tvær milljónir króna

Lottó
Lottó

Fyrsti vinningur í Laugardagslottóinu gekk ekki út að þessu sinni og verður hann því þrefaldur í næstu viku. Jókerinn var hins vegar gjafmildur en einn heppinn miðaeigandi var með allar tölur réttar, í réttri röð og fær hann 2 milljónir í vinning. Miðinn var keyptur í N1 við Gagnveg í Reykjavík.  

Þá voru að auki fjórir miðaeigendur með fjórar réttar Jókertölur, í réttri röð og fá 100 þúsund kall í vinning. Einn miðinn var keyptur í Hagkaup í Skeifunni í Reykjavík en hinir eru allir í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert