Tölvuleikir, glíma og frjálsar

Gert er ráð fyrir góðum fjölda keppenda á Unglingalandsmóti Ungmennafélags Íslands sem haldið verður á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Undirbúningur mótsins er nú á lokastigi og nk. sunnudagskvöld lýkur skráningu. Vænta má að strax upp úr miðri næstu viku fari fólk að sækja á Krókinn, en unglingalandsmótið er nú orðið fast í sessi sem ein fjölsóttasta hátíðin um þessa mestu ferðahelgi ársins.

Landsmót hefða og sögu

„Við gerum ráð fyrir allt að 10 þúsund gestum á svæðinu; fjölskyldufólki sem kemur þá hingað til þess að fylgja krökkunum sínum eftir á samkomu þar sem saman fara íþróttir og afþreying,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri mótsins.

Landsmót UMFÍ byggja á langri hefð og sögu, sem spannar rúmlega öld. Þar blandast saman íþróttir og ýmis þjóðleg gildi sem einkenna starf ungmennafélagshreyfingarinnar. Þátttaka í leiknum – en ekki endilega sigur – er hluti þessa og sú verður einmitt raunin á unglingalandsmótinu.

„Umgjörð mótanna er orðin föst í sessi og við fylgjum henni frá ári til árs. En til þess að fylgja straumi tímans bætum við líka inn nýjum keppnisgreinum auk þess sem afþreyingarþátturinn verður sífellt stærri,“ segir Ómar Bragi, sem hefur haldið utan um landsmótshald UMFÍ síðustu ár. Hann segir fjölda gesta á unglingalandsmótum rokka frá 7 til 14 þúsund. Mótið á Selfossi árið 2012 hafi verið það fjölsóttasta en aðsóknin ráðist alltaf mikið af veðri og fjarlægð frá helstu þéttbýlissvæðum. Aðstöðuna á Sauðárkróki segir hann góða, en þar voru unglingalandsmótin haldin árið 2004 og 2009.

Fleiri fái tækifæri til þátttöku

Frjálsar íþróttir, glíma, körfubolti, sund, knattspyrna og keppni í stafsetningu eru keppnisgreinar sem margir tengja við landsmótin og vissulega verða þær áberandi nú. En svo koma inn nýjar greinar; að þessu sinni siglingar á seglbátum, bogfimi og tölvuleikir. „Já, sjálfsagt þykir einhverjum orka tvímælis að tölvuleikir séu keppnisgrein á móti þar sem íþróttir og hreyfing eru í aðalhlutverki. En sé rétt að þessu staðið, þannig að krakkarnir bindi sig ekki alveg við tölvuleikina, á þetta alveg rétt á sér. Þetta gefur sömuleiðis fleirum en ella tækifæri til þátttöku,“ segir Ómar Bragi sem fékk Sauðkrækinginn Sverri Bergmann, söngvara og leikjaspilara, til þess að sjá um leikjaspil á laugardeginum.

Alls 29 héraðssambönd og félög í öllum landshlutum eiga aðild að UMFÍ. Setningarathöfn mótsins á föstudagskvöldinu fer þannig fram að keppendur ganga inn á keppnisvöllinn undir fána félaga sinna, á athöfn sem hefur mjög hátíðlegan svip. Og svo rúllar dagskráin, þar sem leikur og gleði blandast skemmtilega saman svo til mikillar fyrirmyndar er.

Tækifæri til samveru

Fyrstu árin voru unglingalandsmótin haldið um miðjan júlí. Árið 2002 var ákveðið að færa þau yfir á verslunarmannahelgina, en um það voru næsta skiptar skoðanir. Þetta reyndist þó giftudrjúgt. „Þau sjónarmið heyrðust að þetta gengi að mótunum dauðum. Raunin var þó sú að landsmótin efldust og nú gefa þau fjölskyldunum frábært tækifæri til samveru, sem er stór sigur,“ segir Ómar.

Afþreyingin hafi boðskap

Ókeypis aðgangur er að Unglingalandsmóti UMFÍ, utan hvað skráningargjald fyrir hvern keppanda er 6.000 kr. Ekki er innheimt gjald á tjaldsvæði mótsins, utan hvað fólk sem er í farhýsum greiðir fyrir rafmagnstengingu og slíkt. „Afþreyingin á unglingalandsmóti þarf að hafa boðskap. Vinátta er þema mótsins að þessu sinni; við leggjum mikið upp úr því að krakkar úr ólíkum áttum kynnist, séu saman og fylgi hvert öðru eftir í leik og gleði. Tengist vinaböndum,“ segir Pálína Ósk Hraundal verkefnisstjóri á mótinu.

Meðal afþreyingarþátta á unglingalandsmótinu eru t.d. útibíó, margskonar smiðjur, hæfileikakeppni, sápukúlublástur, handverk, eggjakökugerð, myndlistarkynning, boðið verður upp á andlitsmálun og farið verður í fjallgöngu, Íþróttaálfurinn úr Latabæ leikur listir sínar og svo mætti áfram telja. Þá verða kvöldvökur þar sem fram koma tónlistarmenn eins og Magni Ásgeirsson, Friðrik Dór og Jón Jónsson, Sverrir Bergmann, Þórunn Antonía, hljómsveitin Von og hljómsveit kvöldsins, Dj Jo Jo, Basic House Effect og svo mun Auðunn Blöndal stíga á stokk.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert