Óvenju rólegt hjá lögreglu í Eyjum

Margir eru nú á leið á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Margir eru nú á leið á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Árni Sæberg

Í gærkvöldi voru um 7 til 8 þúsund gestir mættir á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Stöðugt mun bætast við í dag og þar til hátíðinni lýkur aðfaranótt mánudags. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar. 

Óvenju rólegt var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sl. nótt. Ellefu fíkniefnamál komu upp í gær og nótt. Þar fór lögreglan í fjórar húsleitir og í þremur þeirra fannst fíkniefni, en ekki mikið magn, mest 4 til 5 grömm af kannabis. Annað efni sem haldlagt hefur verið er amfetamín og kókaín.

Á hátíðinni verða 6 lögreglumenn sem sinna fíkniefnaeftirliti, að auki eru þeim til aðstoðar tveir fíkniefnahundar.  

Lögreglan vill hvetja foreldra til að brýna fyrir börnum sínum þær hættur sem leynst geta á útihátíðum og telur að ungmenni yngri en 18 ára eigi þangað ekkert erindi nema í fylgd með fullorðnum. Á hátíðarsvæðinu verður öflugt gæsla og eftirlit. Á annað hundrað gæsluliðar verða á hátíðarsvæðinu á mestu álagstímum. Auk 20 lögreglumanna og annars fagfólks sem mun sinna eftirliti, gæslu og þjónustu þessa helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert