Ræddu um Úkraínu og Miðausturlönd

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Fundi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra og Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO), lauk nú síðdegis. Til umræðu var undirbúningur fyrir leiðtogafund bandalagsins í Wales í næsta mánuði, þ.m.t. staða mála í Úkraínu og öryggismál í Evrópu.

„Málefni Afganistan voru til umfjöllunar sem og öryggishorfur í Mið-Austurlöndum. Þá voru öryggismál á norðurslóðum rædd og loftrýmisgæsla bandalagsins á Íslandi sem gengið hefur vel og gegnir áfram þýðingarmiklu hlutverki á Íslandi. Einnig voru vefvarnir og málefni ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi til umfjöllunar. Anders Fogh Rasmussen lýkur störfum sem framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins í lok næsta mánaðar, en Jens Stoltenberg, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, mun taka við embættinu hinn 1. október nk. Þakkaði forsætisráðherra Anders Fogh vel metin störf hans í þágu bandalagsins og aðildarríkja þess,“ segir í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Fram kemur að Rasmussen hafi að loknum fundinum með Sigmundi Davíð haldið til fundar við utanríkismálanefnd Alþingis. Þá muni framkvæmdastjórinn eiga fund með Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra og skoða varðskipið Þór. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka