Bjarminn sést úr Mývatnssveit

Þessi sjón blasti við íbúum í Mývatnssveit í kvöld.
Þessi sjón blasti við íbúum í Mývatnssveit í kvöld. mbl.is/Birkir Fanndal

Frá því í birtingu í morgun hafa gufubólstrar frá gosinu í Holuhrauni verið nokkuð áberandi að sjá frá mörgum bæjum í Mývatnssveit.

Í kvöld hefur svo bjarmi af eldunum tekið við svo sem sjá má á þessari mynd. Það eru hamrabelti Bláfjalls sem koma inn í myndina.

Fram til dagsins í dag hefur lítið borið á bólstrum eða bjarma frá eldunum í Mývatnssveit.

Mikið sjónarspil blasti við á vefmyndavél Mílu í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands benda sjálfvirkir mælar ekki til þess að eldgosið sé að færast í aukana. Mikill kraftur sé hins vegar í gosinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert