Ekki dregur úr gosinu í Holuhrauni

Til að átta sig betur á umfanginu hefur Jarðvísindastofnun sett …
Til að átta sig betur á umfanginu hefur Jarðvísindastofnun sett saman mynd sem sýnir hvað hraunbreiðan myndi þekja stórt svæði á höfuðborgarsvæðinu. mynd/Jarðvísindastofnun HÍ

Ekkert hefur dregið úr gosinu í Holuhrauni og er gosvirkni svipuð og undanfarna daga. Hraun rennur til austurs af svipuðum krafti og áður. Það hægir ekki á hrauninu að það skuli renna í Jökulsá á Fjöllum, áin flæmist til austurs undan hrauninu. Ekki er sprengivirkni þar sem hraunið rennur í ána en gufubólstrar stíga til himins.

Fundur vísindamannaráðs Almannavarna fór fram í morgun. Hann sátu vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Fundinn í dag sátu jafnframt fulltrúar Sóttvarnalæknis og Umhverfisstofnunar.

Jökulsá á Fjöllum flæmist undan hrauninu

Hraun rennur til austurs af svipuðum krafti og áður. Það hægir ekki á hrauninu að það skuli renna í Jökulsá á Fjöllum, áin flæmist til austurs undan hrauninu. Ekki er sprengivirkni þar sem hraunið rennur í ána en gufubólstrar stíga til himins. Flatarmál hraunsins er nú áætlað 19 km2.

Engin virkni, hvorki hraun né kvikustrókar, er merkjanleg á suðursprungunni. Veikt gasstreymi er upp úr kulnuðum gígunum.

Sá styrkur brennisteinsdíoxíðs (SO2) sem mælst hefur á vöktunarstöðvum í Reyðarfirði getur valdið óþægindum hjá fólki með undirliggjandi öndunarfæravandamál en aðrir ættu ekki að finna fyrir teljandi áhrifum.

Unnið er að því að bæta mælanet Umhverfisstofnunar til þess að mæla magn brennisteinsdíoxíðs (SO2) á fleiri stöðum í byggð. Tilmæli frá Sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun má finna á heimasíðum stofnananna.

Haldist gosvirkni svipuð má ætla að loftgæði verði sambærileg næstu daga.

Vísindamenn rýmdu svæðið þrisvar

Mikið gasstreymi er í og í kringum eldstöðina. Bráð lífshætta stafar af gasinu og því er ekki óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma. Vísindamenn hafa þurft að rýma svæðið þrisvar síðasta sólarhringinn vegna þess að gasstyrkur fór langt yfir hættumörk þegar vindátt breyttist skyndilega. Við gosstöðvarnar má búast við sífelldum staðbundnum breytingum á vindátt, vegna hitauppstreymis, sem gera aðstæður þar mjög hættulegar. 

Dregið hefur úr skjálftavirkni á svæðinu. Um 80 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Í Bárðarbungu varð skjálfti að stærð 4,7 klukkan 07:20. Lítill og stöðugur órói hefur mælst síðustu daga.

Kvikustreymi inn í ganginn virðist haldast svipað og útstreymi í gosinu í Holuhrauni. GPS-mælingar sýna óverulegar jarðskorpuhreyfingar.

Gos með hraunflæði, sprengigos, jökulhlaup?

Fjórir möguleikar eru áfram taldir líklegastir um framvindu: 

Að innflæði kviku stöðvist, skjálftahrinan fjari út og kvika brjótist ekki til yfirborðs á fleiri stöðum.

Gangurinn nái til yfirborðs á fleiri stöðum utan jökuls. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.

Gangurinn nái til yfirborðs undir jökli aftur og leiði jafnvel til umtalsverðs eldgoss. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.

Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup kæmi niður Jökulsá á Fjöllum, en ekki er hægt að útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.

Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.

Vísindamenn hafa þurft að rýma svæðið þrisvar síðasta sólarhringinn vegna …
Vísindamenn hafa þurft að rýma svæðið þrisvar síðasta sólarhringinn vegna þess að gasstyrkur fór langt yfir hættumörk þegar vindátt breyttist skyndilega. Af Facebook-síðu Jarðvísindastofnunar HÍ
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert