Akrafell dregið til Reyðarfjarðar

Akrafell á strandstað við Vattarnes.
Akrafell á strandstað við Vattarnes. Ljósmynd/Jens Dan Kristmannsson

Akrafell, flutningaskip Samskipa sem strandaði við Vattarnes í liðinni viku, hefur verið bundið við bryggju á Eskifirði undanfarna daga þar sem unnið hefur verið við að þétta skipið og koma í veg fyrir frekara tjón og fyrirbyggja mengun.

Pálmar Óli Magnússon, forstjóri Samskipa, segir í Morgunblaðinu í dag, að áætlað sé að draga skipið að Mjóeyri við Reyðarfjörð þar sem farmurinn verður losaður og skemmdir á skipinu metnar.

„Á þessari stundu er ekki ljóst hvað tjónið er mikið. Við stefnum á að losa farminn þegar skipið er komið að Mjóeyri og þá ætti að gefast færi á að meta tjónið betur,“ segir Pálmar, sem telur ólíklegt að hægt verði að gera við skipið á Íslandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert