Langar raðir mynda tafir

Ökumenn eru hvattir til að sýna tillitssemi í umferðinni.
Ökumenn eru hvattir til að sýna tillitssemi í umferðinni. mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að þörf sé á því að minna ökumenn á 27. grein umferðarlaga þar sem segir: „Eigi má stöðva ökutæki eða leggja því á þeim stað eða þannig að valdið geti hættu eða óþarfa óþægindum fyrir umferðina.” Ekki síst í því samhengi að á morgnana er mörgum börnum og ungmennum ekið í skóla. 

Fram kemur í tilkynningu, að ökumenn stöðvi þá oft á akbraut sem næst inngöngudyrum til að hleypa út farþegum, jafnvel þó hentugt útskot sé skammt frá.

„Þar sem mikil umferð er á skömmum tíma geta myndast langar raðir bíla með tilheyrandi töfum, t.d. á Listabraut framan við Verslunarskólann eins og lögreglan hefur fengið ábendingar um. Ökumenn eru beðnir um að hafa framangreint í huga,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert