Læknar samþykktu verkfall

Tóm læknastofa.
Tóm læknastofa. mbl.is/Eggert

Atkvæðagreiðslu hjá Læknafélagi Íslands um verkfallsboðun lækna er lokið. Yfir 80% af atkvæðisbærum læknum tók þátt í kosningunni og yfir 95% þeirra samþykktu fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir sem gert er ráð fyrir að hefjist þann 27. október.

Niðurstaða kosninganna er því afgerandi en þetta er í fyrsta sinn sem læknar á Íslandi, sem fengu takmarkaðan verkfallsrétt fyrir tæpum 30 árum, boða til verkfalls. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar hefur verið tilkynnt ríkissáttasemjara og formanni Samninganefndar ríkisins, samkvæmt upplýsingum Læknafélagsins.

Alls tóku 728 læknar þátt í atkvæðagreiðslunni og samþykktu 699 (96,02%) þeirra tillögu stjórnar LÍ um boðun vinnustöðvunar. Nei sögðu 15 (2,06%) og 14 (1,92%) skiluðu auðu.

Fyrirhugaðar aðgerðir eru í samræmi við lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna en í þeim öðluðust læknar takmarkaðan verkfallsrétt. Vinna lækna í verkfalli verður í samræmi við undanþágulista sem fjármálaráðuneytið birti í auglýsingu nr. 101/2014 og er gert ráð fyrir að á þeim dögum sem efnt er til verkfalla verði hverju sinni tryggð sambærileg mönnun og tíðkast á frídögum.

Náist samningar ekki í tæka tíð munu læknar sem starfa samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands fara í verkföll með eftirgreindum hætti:

1. Frá miðnætti aðfaranótt mánudagsins 27. október til miðnættis þriðjudagsins 28.
október 2014 (tveir sólarhringar) og frá miðnætti aðfaranótt mánudagsins 17. nóvember
til miðnættis þriðjudaginn 18. nóvember 2014 (tveir sólarhringar) á eftirtöldum
heilbrigðisstofnunum/sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:

a. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins b. Heilbrigðisstofnun Vesturlands
c. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða d. Heilbrigðisstofnun Norðurlands
e. Heilbrigðisstofnun Austurlands f. Heilbrigðisstofnun Suðurlands
g. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja h. Rannsóknarsvið Landspítala
i. Kvenna- og barnasvið Landspítala

2. Frá miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins 29. október til miðnættis fimmtudaginn 30.
október 2014 (tveir sólarhringar) og frá miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins 19.
nóvember til miðnættis fimmtudaginn 20. nóvember 2014 (tveir sólarhringar) á
eftirtöldum heilbrigðisstofnunum/sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:

a. Sjúkrahúsið á Akureyri b. Lyflækningasvið Landspítala

3. Frá miðnætti aðfaranótt mánudagsins 3. nóvember til miðnættis þriðjudaginn 4.
nóvember 2014 (tveir sólarhringar) og frá miðnætti aðfaranótt mánudagsins 24.
nóvember til miðnættis þriðjudaginn 25. nóvember 2014 (tveir sólarhringar) á eftirtöldum
heilbrigðisstofnunum/sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:

a. Aðgerðarsvið Landspítala b. Flæðisvið Landspítala

4. Frá miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins 5. nóvember til miðnættis fimmtudagsins 6.
nóvember 2014 (tveir sólarhringar) og frá miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins 26. nóvember til miðnættis fimmtudagsins 27. nóvember 2014 (tveir sólarhringar) á
eftirtöldum heilbrigðisstofnunum/sjúkrahúsum eða sviðum sjúkrahúss:

a. Geðsvið Landspítala b. Skurðlækningasvið Landspítala

5. Frá miðnætti aðfaranótt mánudagsins 8. desember til miðnættis þriðjudaginn 9.
desember 2014 (tveir sólarhringar) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum/sjúkrahúsum eða
svipum sjúkrahúss.

a. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins b. Heilbrigðisstofnun Vesturlands
c. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða d. Heilbrigðisstofnun Norðurlands
e. Heilbrigðisstofnun Austurlands f. Heilbrigðisstofnun Suðurlands
g. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja h. Rannsóknarsvið Landspítala
i. Kvenna- og barnasvið Landspítala j. Aðgerðarsvið Landspítala

6. Frá miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins 10. desember til miðnættis fimmtudaginn 11.
desember 2014 (tveir sólarhringar) á eftirtöldum heilbrigðisstofnunum/sjúkrahúsum eða
sviðum sjúkrahúss:

a. Sjúkrahúsið á Akureyri b. Flæðissvið Landspítala
c. Lyflækningasvið Landspítala d. Geðsvið Landspítala
e. Skurðlækningasvið Landspítala

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert