Fátt jafn óheppilegt og kjaradeilur inn í viðkvæma starfsemi

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. mbl.is/Kristinn Magnússon

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir að talsverð vinna sé framundan á spítalanum í kjölfar niðurstöðu gerðardóms sem var skipaður í kjaradeilu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins. „Ég hef sagt það áður og segi það enn – fátt er jafn óheppilegt og kjaradeilur inn í viðkvæma starfsemi Landspítala.“

Niðurstaða gerðardómsins var kynnt 1. september, en hann úr­sk­urðaði að ríkið skyldi leggja Land­spít­al­an­um til aukna fjár­muni sem ráðstafa á til að bæta kjör hjúkr­un­ar­fræðinga á grund­velli stofn­ana­samn­ings, alls 900 millj­ón­ir króna á ári frá sept­em­ber þessa árs til loka gild­is­tíma kjara­samn­ings aðila. 

„Niðurstaðan kallar á talsverða vinnu hér á Landspítala og höfum við unnið að útfærslunni í samvinnu við Fíh. Það er von mín að unnt verði að kynna niðurstöðu hið fyrsta og að langri kjaradeilu hjúkrunarfræðinga við viðsemjanda sinn ljúki þar með. Ég hef sagt það áður og segi það enn – fátt er jafn óheppilegt og kjaradeilur inn í viðkvæma starfsemi Landspítala,“ skrifar Páll í pistli sem birtur hefur verið á vef Landspítalans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert