Bjarki Már Elísson landsliðsmaður í handbolta er í úrvalsliði fyrri leikja átta liða úrslita Meistaradeildar Evrópu.
Hornamaðurinn lék mjög vel fyrir ungverska liðið Veszprém er það lagði Aalborg frá Danmörku að velli á heimavelli, 32:31.
Danska liðið var með sex marka forskot, sem Bjarka og félögum tókst að vinna upp og snúa taflinu sér í vil.
Bjarki skoraði fimm mörk úr fimm skotum og komu flest mörkin á spennandi lokakafla.